Henry vinnufélagi minn er maðurinn í dag. Hann er Bolur Bolsson og sýndi á einni viku hvernig hægt er að gerast vinsælasti moggabloggari landsins. Um framtak hans má lesa hér.
Ég fylgdist með þessu frá upphafi og hef sjaldan skemmt mér eins vel. Ég hef átt mjög erfitt með mig undanfarna viku að geta deilt þessu bara með þeim fáu sem vissu af þessu. Ég hvet alla til að lesa í gegnum bloggið og þá sérstaklega öll kommentin sem komu með færslunum. Þau voru mörg hver alveg drepfyndin, sérstaklega frá þeim sem tóku Bol alveg grafalvarlega. Við höfum skemmt okkur gríðarlega vel yfir þessari lesningu undanfarna viku.
Ég er kominn með upp í kok af þessu Moggabloggi. Steininn tók úr þegar einhver María fór að kommenta einhverja tóma steypu á formúlufærsluna mína. Mikið svakalega fór það í taugarnar á mér, það komment - alveg í mínar fínustu.
Svo þegar stjórnendur Moggabloggsins eyddu blogginu hans Bols átti ég ekki til orð. Þeir vissu greinilega upp á sig sökina og opnuðu bloggið aftur skömmu síðar - þá meingallað eins og sést á blogginu í dag. Hverslags hroki er þetta eiginlega? Æ já, Moggahroki.
Þetta er því um leið síðasta færslan mín á moggablogginu og fyrsta færslan á nýja blogginu mínu.
Ég viðurkenni fúslega að hafa fréttabloggað stöku sinnum. Þau mistök munu ekki eiga sér stað aftur.
Tja, ekki nema í þetta eina skiptið. Svona til að heiðra framtak Bols/Henrys.
Ertu að segja mér að Moggamenn hafi einfaldlega þurrkað hann út? Efast að hann hafi þurrkað sig út sjálfur eftir allt það sem Bolur var búinn að leggja í bloggið sitt.
HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ GERAST HÉRNA Á ÞESSU FJANDANS MOGGABLOGGI?!?!
Í fyrsta sinn í mörg ár settist ég niður í dag og horfði á Formúlukeppni, frá upphafi til enda. Ég sá meira að segja tímatökurnar í gær. Mikið hrikalega skemmti ég mér vel.
Í mínu starfi hef ég auðvitað margoft horft á keppnir með öðru auganu en allir sem fylgjast með Formúlunni vita að það er ekkert hægt að fylgjast með keppninni með öðru auganu. Það má helst ekki fara á klósettið - maður gæti misst af gríðarlega mikilvægu atriði í keppninni. Það sem er svo skemmtilegt við Formúluna að vendipunktarnir geta komið hvenær sem er. Hvort sem það er árekstur, mistök í viðgerðarhléi eða það allra skemmtilegasta - rigning.
Ég er McLaren-maður. Hélt með Häkkinen og Coulthard þegar þeir voru upp á sitt besta. Þeir háðu margar hatrammar rimmur við Ferrari - Häkkinen og Schumi auðvitað, og svo Coulthard og Eddie Irvine sem er líklega skemmtilegasta týpa sem keppt hefur í Formúlunni.
Ég þoli hins vegar ekki Alonso. Og það sem gerðist um helgina hefur ekki bætt álit mitt á honum. Maðurinn er skíthæll og vonandi hypjar hann sig sem fyrst frá liðinu. Sem gamall Häkkinen-maður þoldi ég auðvitað ekki Schumacher en ég get svo svarið það, ég hélt með honum frekar en Alonso. Maður á aldrei að treysta manni með samvaxnar augabrúnir og það skal engin segja mér að hann plokki ekki á milli eins og versta kjelling.
En eins og má sjá hér í athyglisverðri grein á vef BBC er stærsta rimman í formúlunni í dag á milli liðsfélaganna Hamilton og Alonso. Hamilton sagði að honum þætti bara fínt að liðsfélaga sínum var refsað um helgina. Ekkert að því. Gott komment hjá Hamilton og loksins að hann sýnir smá karakter utan brautarinnar. Ég er byrjaður að fíla hann.
Sex keppnir eftir og sjö stig á milli þeirra. Verð líka að bæta því við að mér þótti ekkert að því að sjá Kimi "pappaspjald" Raikkönen éta ryk Hamilton alla keppnina og Massa í einhverju tómu tjóni í 14. sæti. Svo gamli Ferrari-refurinn Rubens Barrichello í síðasta sæti. Hvað í fjandanum er annars að gerast hjá Honda og man nokkur maður enn eftir Jenson "ég-fell-ekkert-í-skuggann-á-Hamilton" Button?
PS. Webber er toppmaður en Rosberg þýskur smjörpungur af verstu gerð.
Á morgun á Viktoría Svíaprinsessa afmæli. Fyrir þá sem ekki vita fæddist ég í Svíþjóð þegar mamma og pabbi voru við nám í Uppsala. Það var ósjaldan sem mér var sagt að það væru nú ekki nema tveir dagar á milli mín og prinsessunnar. Ég hef líka alltaf haldið að mamma hafi gengið með þann draum að ég og prinsessan tækjum saman og ég yrði hluti af sænsku konungsfjölskyldunni.
Ekki varð það raunin enda flutti ég tveggja ára til Íslands og fengum við aldrei tækifæri til að fella saman hugi okkar, ég og Viktoría. Þessa dagana erum við þjáningarsystkini - hennar þrítugsafmæli er opinber skrumskæling og ÉG ER AÐ VERÐA FOKKINGS ÞRÍTUGUR!
Sá þessa skemmtilegu frétt á fótbolta.net. Hún fjallar um það að Fylkismenn þurftu að spila í varabúningum Þórs þar sem aðalbúningur Fylkis þótti of líkur aðalbúningi Þórs.
Nú veit ég að Þórsarar voru á heimavelli en hefði það virkilega verið það slæmt ef þeir hefðu farið í varabúninginn sinn svo Fylkismenn gætu leikið í þeim búningum sem þeir tóku með? Varabúningurinn er hvítur með rauðum buxum, svona rétt eins og aðalbúningur Þórs hefur lengst af verið.
Hefði það virkilega verið svo mikil pína?
Fylkismenn skoruðu tvö mörk í öllum júnímánuði en fjögur í varabúningi Þórs í þessum eina leik. Kannski að þeir ættu að skoða það að fá að leika oftar í þeim búningi.
Hvað eru meðlimir aganefndar KSÍ að reykja?
Hvernig stendur á því að þeir Páll Gísli Jónsson og Einar Orri Einarsson fá aðeins eins leiks brottvísun. Ég hélt að venjan væri tveggja leikja bann fyrir beint rautt. Páll Gísli tæklaði mann þegar boltinn var ekki í leik og Einar Orri gjörsamlega slátraði Bjarna Guðjónssyni með ótrúlegri tæklingu.
Ef menn fá ekki tveggja leikja bann fyrir slíka takta, hvað þarf eiginlega til?
Ég man að í 1. umferð fékk Prince Rajcomar, Breiðabliki, tveggja leikja bann fyrir beint rautt spjald. Mér liggur forvitni á að vita hverju þessi munur sætir.
Ég bara get ekki orða bundist vegna grein DV um deilu ÍA og Keflavíkur í dag. Þar skrifar Kristín Hrefna Halldórsdóttir grein með fyrirsögninni "Fjölskyldan varð fyrir aðkasti".
Fyrsta málsgreinin er svona: "Anna María Gísladóttir, eiginkona Bjarna Guðjónssonar, varð fyrir aðkasta nokkurra leikmanna Keflvíkinga eftir leik ÍA og Keflavíkur í fyrrakvöld."
Svo kemur nokkru síðar: "Nokkrir leikmenn Keflavíkurliðsins veittust að Önnu María, konu Bjarna, eftir leikinn og hreytti í hana fúkyrðum þannig að henni stóð ekki á sama."
Nú veit ég ekkert hvort þetta er rétt atburðarrás því ég var ekki á staðnum. En var Kristín Hrefna á staðnum? Það kemur ekki fram í greininni. Er þessi lýsing á atburðunum frá sjónarvitni? Það kemur ekki heldur fram í greininni. Þessu er einfaldlega slegið fram sem heilögum sannleik.
Í greininni er rætt við Gísla Gíslason, formann rekstrarráðs KÍA, Bjarna Guðjónsson og Önnu Maríu. Þar með er aðeins fengin einhliða lýsing á atburðunum og þar við látið sitja.
Án þess að ég gagnrýni hvað hafi átt sér stað leyfi ég mér að gagnrýna vinnubrögð Kristínar Hrefnu og DV - og það harkalega. Þetta er kranablaðamennska af verstu gerð og engu líkara en að annar aðilinn í þessu deilumáli hafi fengið að skrifa greinina.
Það hefur sýnt sig, til að mynda í Kastljósi í gær og Fréttablaðinu í dag, að þarna eru menn hreinlega ekki sammála um hvað gerðist. Orð standa gegn orði. Því lítur grein DV afar fíflalega út.
"Eiríkur, er þetta ekki afi þinn í sjónvarpinu?" heyrði ég kallað úr fjarlægð í vinnunni á sunnudagskvöldið.
Afi minn?, hugsaði ég. Hvernig í ósköpunum ætti það að vera? Þeir hafa jú báðir kvatt þetta líf.
Nú eru menn eitthvað að rugla. Ég ákvað samt að skipta yfir á Rúv og viti menn, þarna var afi minn og alnafni, Eiríkur Ásgeirsson, í svarthvítu viðtali að ræða málefni SVR (gamla Strætó). Mikið rosalega brá mér. Afi Ei dó árið 1983, þegar ég var sex ára. Ég man vel eftir honum en bjóst aldrei við að ég myndi sjá hann í sjónvarpsviðtali sísvona. Það var furðulegt en líka mjög skemmtilegt.
Það er líka þrælmerkilegt sem kemur fram í þessu viðtali. Verið er að ræða fækkun farþega í strætó og spyr fréttamaður hvort eitthvað af því megi skrifa á aukinn innflutning einkabíla til landsins. Afi samsinnir því og segir að meira komi til. Til dæmis að fólk borði æ meira hádegismat í vinnunni og að tilkoma ríkissjónvarpsins hafi orðið til þess að fólk fari minna út á kvöldin.
Hann nefndi líka ótrúlegar tölur. 18,1 milljón manns tóku strætó árið 1962 og 14,9 milljónir árið 1966. Þetta er mun meira en í dag og þá var hann bara að tala um Rekjavík. Í dag er talað um allt höfuðborgarsvæðið og mun, mun minni tölur.
Viðtalið merkilega má sjá hér.  Linkurinn deyr held ég eftir nokkrar vikur.
Ég hef alltaf heyrt að pabbi líkist afa mjög mikið og ég líkist svo pabba mjög mikið. Afi var um það bil 45 ára þegar þetta viðtal var tekið og því kannski of snemmt að segja til hvort ég líkist honum mikið. Persónulega sé ég mjög sterkan svip með afa og Halldóri frænda mínum. Líka pabba auðvitað líka en Oddur frændi hlýtur að vera eingetinn af móður sinni, svona rétt eins og sonur minn
Hef verið að láta til mín taka í golfinu undanfarið. Hef núna farið fjórum sinnum og spilað níu holur og nú síðast spilaði ég átján holur á Vífilstaðavelli með Hjalta og pabba.
Ég er byrjandi, eins og áður hefur komið fram, og árangurinn eftir því.
1. Grafarholtsvöllur (með Henry og Hjalta) - 9 holur = 74 högg
2. Kálfatjarnarvöllur (Sportpress-mótið) - 9 holur = Spilaði Texas Scramble með Henry, spiluðum á 56 höggum.
3. Korpúlfsstaðavöllur (með Hjalta) - 9 holur = 86 högg
4. Vífilstaðavöllur (með Hjalta) - 9 holur = 68 högg
5. Vífilstaðavöllur  (með Hjalta og pabba) =  145 högg (72+73)
Í hring no. 4 átti ég dínamískt chip beint ofan í holuna á 9. braut. Leiki aðrir það eftir, segi ég bara.
Í hring no. 5 átti ég annað dínamískt chip á 16. af 30 metra færi sem rann í stöngina og stoppaði 2 cm frá holunni, hinum megin við stöngina. Svo átti ég glæsilegt teighögg á par 3 holu sem endaði um 3 metra frá holu.
Þetta er allt að koma, segi ég. Ég hef allavega sett mér markmið:
No. 1 - Bæta mig í hvert skipti
No. 2 -  Komast á næsta tug fyrir neðan
No. 3 - Ná double bogey að meðaltali á hverri holu
No. 4 - Bæta forgjöfina hægt og rólega
No. 5 - Heimsyfirráð eða dauði
Undanfarna viku hef ég þrívegis farið í golf. Þetta er í fyrsta sinn síðan sumarið 1993. Nei, ég lýg engu. Í fjórtán ár hef ég ekki spilað golf nema einstöku sinnum. Líklega 2-3 skipti þar ég tók kylfurnar aftur fram nú um daginn.
Ég hélt ég væri þokkalegur byrjandi í golfi. Annað hefur komið á daginn. Af þessum ástæðum hef ég ákveðið að skrifa restina af færslunni á lélegri þýsku.
Am anfang habe ich ungefähr vierundsiebzig schosse gemacht. Das war aber nicht auf vollem achtzehn zondern nur neun. Also nicht sehr gut. Danach habe ich mit meiner Kollegen im Texas Scramble gespielt und er hat mich vollig aussgespielt. Deswegen zählt das vielleicht nicht mit. Heute morgen habe ich dann wieder alleine gespielt, diesmal mit einem anderen Kollegen. Ich hab' mich vollig geschieesen und sechsundachtzig Schosse gemacht. Wieder auf neun. Ich muss mich verbessern aber mir macht das doch spass und das ist das wichtigste.
16. júní í dag. Stærðfræðingar hafa reiknað út að einn mánður sé í afmælið mitt. Einn mánuður, svo verð ég þrítugur. Ég er 29 ára í einn mánuð í viðbót. Mér finnst það ekkert eðlilegt.
Er að spá í að vera 29 ára í nokkur ár í viðbót, að minnsta kosti.
Þann 2. nóvember skrifaði ég þetta í kommentakerfið við færslu Baldurs. Hann var að skrifa um opening night í NBA-deildinni og bað menn um að koma með spár. Ég og Hjalti voru þeir einu sem þorðu að spá.
Stórkostlegt.
Þarf smá tíma til að kynna mér þetta, er í Digranesinu með veturinn. Spá kemur
von bráðar. Minni spámenn geta reynt sig á meðan. Leiðinlegt ef allir herma
eftir mér.
Lecter
Ég segi að San
Antonio muni skeina þessu í vor.
Gloria | 02.11.06 - 11:11 am | #
Auglýsi eftir fleiri minni spámönnum með
"djarfar" og "frumlegar" spár.
annars þarf að pappíra Skapta kallinn, shit hvað gaurinn er búinn að skíta á
sig.
Schkeindu þér dreng.
Lecter
Ég vísa þessum ásökunum Lectersins til föðurhúsanna.
Hreinsinn tekur á málinu.
Hvaða bíl sá ég á Glerártorgi í gær nema jú, einn Lexa!!! Langaði að fara að
leita að honum en hafði því miður ekki tíma.
Ég held að Houston taki titilinn, með minn mann T-Mac í broddi
fylkingar.
Skaptmann
Nú mun Henry sjálfsagt eitthvað væla um að hann hafi líka spáð San Antonio sigri en ég blæs á allt slíkt. Hann var bara að herma eftir mér. Það eftir að hann hafi reynt eitthvað að gera lítið úr spánni minni. Pfff.
Annars voru úrslitin algjör viðbjóður og sýnir hversu mikill munur er á Austur- og Vestur-deildunum. Austrið er bara í gríninu.