2.1.2007 | 17:22
Af hverju kaus ég Guðjón Val (Uppfært)
Velkomin á bloggið mitt. Þetta er fyrsta færslan mín og engin tilviljun að hún tengist vali okkar í Samtökum íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins. Bloggheimurinn hefur tjáð sig mikið um valið og sitt sýnist hverjum. Einhverjir hafa krafið okkur um að gera grein fyrir atkvæði okkar. Því er ég sammála og ætla því að birta minn lista hér og nú:
1. Guðjón Valur Sigurðsson
Var valinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar af leikmönnum og þjálfurum. Varð einnig markahæsti leikmaður deildarinnar en hún er án efa sú sterkasta í heimi. Það er einfaldlega mitt mat að það sé ekki hægt að afreka meira sem einstaklingur í þessari íþrótt.
Handbolti á ekkert í vinsældir fótbolta segja einhverjir. Það er satt. En við búum á Íslandi og á Íslandi fylgjast margir með handbolta og þá sér í lagi afrekum atvinnumannanna og landsliðsins.
2. Eiður Smári Guðjohnsen
Spilar með Barcelona, einu besta félagsliði heims, sem eitt og sér er ótrúlegt afrek. Jafnaði markamet Ríkharðs Jónssonar á árinu. En hann á fyrst og fremst að vera dæmdur af verkum sínum á vellinum. Og mitt mat er að hann hefur átt kannski 10-15 góða leiki á árinu. Því ákvað ég að skrifa Guðjón Val ofar á minn lista en Eið Smára.
3. Ólafur Stefánsson
Vann Meistaradeild Evrópu með Ciudad Real og átti þar að auki afar góðan leik í úrslitaleiknum. Var sömuleiðis valinn í úrvalslið á EM í Sviss. Ekki flókið mál og þessir þrír í nokkrum sérflokki, um það deilir held ég enginn.
4. Ásthildur Helgadóttir
Það vilja margir gleyma að Ásthildur sleit krossbönd í hné fyrir um það bil tveimur árum. Hún náði sér aftur á strik og bætti sig ef eitthvað er. Hún samdi við Breiðablik síðastliðinn vetur en var nánast þvinguð að spila annað tímabil með Malmö í Svíþjóð. Þar var hún einn markahæsti leikmaðurinn og tilnefnd sem einn þriggja bestu framherja deildarinnar sem margir telja vera sú besta í heimi. Marta, knattspyrnumaður ársins 2004-6, spilar einnig í sömu deildinni og komst ekki á þennan lista. Magnaður árangur svo ekki sé minna sagt. Hún hefur þó oft átt betur ár með landsliðinu.
5. Margrét Lára Viðarsdóttir
Bætti ótrúlegt markamet þegar hún skoraði 34 mörk í 14 leikjum í efstu deild kvenna. Skoraði átta mörk í átta leikjum með landsliðinu og samdi við eitt besta lið Þýskalands, Duisburg. Þjóðverjar eru heims- og Evrópumeistarar og flestir, ef ekki allir, landsliðsmennirnir spila í Þýskalandi. Var mjög erfitt að ákveða hvort Margrét eða Ásthildur ætti að vera ofar á listanum og má segja að tilfinning hafi einfaldlega ráðið för þar.
6. Örn Arnarson
Byrjaði árið á því að fara í hjartaþræðingu og lauk því með því að komast á verðlaunapall í flugsundi á EM í 25 m laug. Og það í grein sem hefur ekki verið hans sérgrein, baksundi. Það er eins og að sleggjukastari ákveði allt í einu að skella sér í kúluvarp og komast á verðlaunapall á stórmóti í þeirri grein.
7. Birgir Leifur Hafþórsson
Stóð sig ágætlega á Áskorendamótaröðinni en náði þó lítið að bæta árangur sinn á milli ára. Komst þó í gegnum úrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina sem er vitanlega frábær árangur. Ég held að Birgir Leifur eigi miklu meira inni og lít á 2006 sem aðeins forsmekkinn að því sem koma skal hjá honum.
8. Dagný Linda Kristjánsdóttir
Dagný Linda náði stórkostlegum árangri á Ólympíuleikunum í Tórínó í vetur. Var það besti árangur Íslendings í alpagreinum frá upphafi ef ég man rétt. Skíðamenn eins og Dagný Linda eiga helst möguleika á sýna sitt besta á Ólympíuleikum og því þykir mér algjör synd að hún hafi ekki komist inn á topp tíu þetta árið í vali okkar allra í SÍ.
9. Sif Pálsdóttir
Varð margfaldur Íslandsmeistari og náði sömuleiðis í Norðurlandameistaratitil. Frábær árangur sem ber að viðurkenna.
10. Helena Sverrisdóttir
Helena hefur þrátt fyrir ungan aldur borið höfuð og herðar yfir stöllur sínar í körfuboltanum, bæði í Haukum og í landsliðum Íslands, A-liðinu og yngri. Ég bíð afar spenntur eftir því sem koma skal hjá henni og býst fastlega við að hún komist í WNBA-deildina eftir 4 ár.
Ég býð lesendum, ef einhverjir eru, að koma með athugasemdir og gagnrýna val mitt.
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 3.1.2007 kl. 20:58 | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 31060
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Athugið
Aðrir bloggvinir

digranes
730
jonastryggvi
veggurinn
ithrottir
Athugasemdir
Ég elska að stunda íþróttir en að horfa á er hundleiðinlegt... því ætla ég bara að segja kvitt
Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.1.2007 kl. 19:08
Með fullri virðingu fyrir Ásthildi og Margréti þá finnst mér ótrúlegt að Birgir Leifur sem komst inn á stærstu mótaröð í heimi í golfi (þar sem er mun meiri samkeppni en í kvennaknattspyru) og Auðunn sem varð heimsmeistari hafi ekki orðið ofar, þ.e.a.s. annar komst ekki einu sinni á listann þinn, Af hverju er Dagný Linda þarna sem ekki hefur afrekað neitt á alþjóðlegum vettvangi en ekki Auðunn og badmintonkonan
sigurður (IP-tala skráð) 2.1.2007 kl. 19:47
Birgir Leifur í 7 sæti! Þetta er lélegasti listi sem ég hef séð, þá vísa ég aðeins í val þitt á Birgi í 7 sæti og að Auðunn sé ekki á listanum þínum. En þetta val er vissulega matskennt mjög.
Alvy Singer, 2.1.2007 kl. 20:02
Ég er sammála að hafa Birgi ekki ofar en hann er. Hann á eftir að sanna sig á mótaröðinni.
Árni Torfason, 3.1.2007 kl. 19:46
10-15 góðir leikir á árinu, vermdi tréverkið mest af fyrri hluta ársins hjá chelsea, er það nú orðið nóg til að skila mönnum í annað sætið í kjöri íþróttamanns ársins? Hvað geta íþróttamenn/konur í minni íþróttum en fótbolta og handbolta gert til að fá þá viðurkenningu sem þeir/þær eiga skilið því að það er greinilegt að heimsmeistaratitill er ekki nóg
Helgi Jóhannesson (IP-tala skráð) 4.1.2007 kl. 08:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.