14.8.2007 | 20:19
Af Boli Bolssyni um leið og ég kveð Moggabloggið
Henry vinnufélagi minn er maðurinn í dag. Hann er Bolur Bolsson og sýndi á einni viku hvernig hægt er að gerast vinsælasti moggabloggari landsins. Um framtak hans má lesa hér.
Ég fylgdist með þessu frá upphafi og hef sjaldan skemmt mér eins vel. Ég hef átt mjög erfitt með mig undanfarna viku að geta deilt þessu bara með þeim fáu sem vissu af þessu. Ég hvet alla til að lesa í gegnum bloggið og þá sérstaklega öll kommentin sem komu með færslunum. Þau voru mörg hver alveg drepfyndin, sérstaklega frá þeim sem tóku Bol alveg grafalvarlega. Við höfum skemmt okkur gríðarlega vel yfir þessari lesningu undanfarna viku.
Ég er kominn með upp í kok af þessu Moggabloggi. Steininn tók úr þegar einhver María fór að kommenta einhverja tóma steypu á formúlufærsluna mína. Mikið svakalega fór það í taugarnar á mér, það komment - alveg í mínar fínustu.
Svo þegar stjórnendur Moggabloggsins eyddu blogginu hans Bols átti ég ekki til orð. Þeir vissu greinilega upp á sig sökina og opnuðu bloggið aftur skömmu síðar - þá meingallað eins og sést á blogginu í dag. Hverslags hroki er þetta eiginlega? Æ já, Moggahroki.
Þetta er því um leið síðasta færslan mín á moggablogginu og fyrsta færslan á nýja blogginu mínu.
Ég viðurkenni fúslega að hafa fréttabloggað stöku sinnum. Þau mistök munu ekki eiga sér stað aftur.
Tja, ekki nema í þetta eina skiptið. Svona til að heiðra framtak Bols/Henrys.
|
Viktoría Beckham leikur feita brúðarmær |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Hitt og þetta
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 31118
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Athugið
Aðrir bloggvinir


digranes
730
jonastryggvi
veggurinn
ithrottir
Athugasemdir
ég skil ekki alveg, er ykkur eitthvað illa við að fólk sé spjalla saman, hvort það er á vísi, mogganum eða á götunni?, þarf alltaf að rífa allt niður og þykjast vera meiri maður, ef það er nóg hlegið að vitleysunni
Hallgrímur Óli Helgason, 14.8.2007 kl. 20:23
Ótrúlegt hvað menn leggjast lágt þegar kemur að því að reyna að hlekkja á vinsælasta netmiðli landsins.
Svo sýnist mér að vinnufélagi þinn hafi fengið að njóta sín meira á mbl.is en á sínum núverandi vinnustað.
Enga fýlu út í mig samt. Ég er bara að segja mína skoðun eins og siður er meðal flestra bloggara.
Bjarni Thor Kristinsson, 14.8.2007 kl. 20:37
Sælir drengir
Nei, þetta snýst ekki um spjall eða að hlekkja á mbl.is. Frekar um þetta innihaldsslausa fréttablogg og þá bloggara sem blogga eingöngu um fréttir til þess að afla sér vinsælda. Þessir fréttabloggarar hafa svo nákvæmlega ekkert fram að færa annað en að endursegja innihald fréttinnar.
Það er mín skoðun.
En Bjarni, gaman að fá þig hingað inn. Ég bjó einu sinni í Vínarborg og þekki þig þaðan.
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, 14.8.2007 kl. 21:19
hæ ég hef líka fengið nóg og hef ákveðið að fara frá þessu rugli sem moggabloggið er.
Gangi þér vel
Elvar Geir Sævarsson, 15.8.2007 kl. 12:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.