14.8.2007 | 20:19
Af Boli Bolssyni um leið og ég kveð Moggabloggið
Henry vinnufélagi minn er maðurinn í dag. Hann er Bolur Bolsson og sýndi á einni viku hvernig hægt er að gerast vinsælasti moggabloggari landsins. Um framtak hans má lesa hér.
Ég fylgdist með þessu frá upphafi og hef sjaldan skemmt mér eins vel. Ég hef átt mjög erfitt með mig undanfarna viku að geta deilt þessu bara með þeim fáu sem vissu af þessu. Ég hvet alla til að lesa í gegnum bloggið og þá sérstaklega öll kommentin sem komu með færslunum. Þau voru mörg hver alveg drepfyndin, sérstaklega frá þeim sem tóku Bol alveg grafalvarlega. Við höfum skemmt okkur gríðarlega vel yfir þessari lesningu undanfarna viku.
Ég er kominn með upp í kok af þessu Moggabloggi. Steininn tók úr þegar einhver María fór að kommenta einhverja tóma steypu á formúlufærsluna mína. Mikið svakalega fór það í taugarnar á mér, það komment - alveg í mínar fínustu.
Svo þegar stjórnendur Moggabloggsins eyddu blogginu hans Bols átti ég ekki til orð. Þeir vissu greinilega upp á sig sökina og opnuðu bloggið aftur skömmu síðar - þá meingallað eins og sést á blogginu í dag. Hverslags hroki er þetta eiginlega? Æ já, Moggahroki.
Þetta er því um leið síðasta færslan mín á moggablogginu og fyrsta færslan á nýja blogginu mínu.
Ég viðurkenni fúslega að hafa fréttabloggað stöku sinnum. Þau mistök munu ekki eiga sér stað aftur.
Tja, ekki nema í þetta eina skiptið. Svona til að heiðra framtak Bols/Henrys.
|
Viktoría Beckham leikur feita brúðarmær |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.8.2007 | 15:40
HVAÐ VARÐ UM BOL BOLSSON???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.8.2007 | 15:38
HVAÐ VARÐ UM BOL BOLSSON????
Ertu að segja mér að Moggamenn hafi einfaldlega þurrkað hann út? Efast að hann hafi þurrkað sig út sjálfur eftir allt það sem Bolur var búinn að leggja í bloggið sitt.
HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ GERAST HÉRNA Á ÞESSU FJANDANS MOGGABLOGGI?!?!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.8.2007 | 23:52
Afar skemmtilegur rígur í Formúlunni
Í fyrsta sinn í mörg ár settist ég niður í dag og horfði á Formúlukeppni, frá upphafi til enda. Ég sá meira að segja tímatökurnar í gær. Mikið hrikalega skemmti ég mér vel.
Í mínu starfi hef ég auðvitað margoft horft á keppnir með öðru auganu en allir sem fylgjast með Formúlunni vita að það er ekkert hægt að fylgjast með keppninni með öðru auganu. Það má helst ekki fara á klósettið - maður gæti misst af gríðarlega mikilvægu atriði í keppninni. Það sem er svo skemmtilegt við Formúluna að vendipunktarnir geta komið hvenær sem er. Hvort sem það er árekstur, mistök í viðgerðarhléi eða það allra skemmtilegasta - rigning.
Ég er McLaren-maður. Hélt með Häkkinen og Coulthard þegar þeir voru upp á sitt besta. Þeir háðu margar hatrammar rimmur við Ferrari - Häkkinen og Schumi auðvitað, og svo Coulthard og Eddie Irvine sem er líklega skemmtilegasta týpa sem keppt hefur í Formúlunni.
Ég þoli hins vegar ekki Alonso. Og það sem gerðist um helgina hefur ekki bætt álit mitt á honum. Maðurinn er skíthæll og vonandi hypjar hann sig sem fyrst frá liðinu. Sem gamall Häkkinen-maður þoldi ég auðvitað ekki Schumacher en ég get svo svarið það, ég hélt með honum frekar en Alonso. Maður á aldrei að treysta manni með samvaxnar augabrúnir og það skal engin segja mér að hann plokki ekki á milli eins og versta kjelling.
En eins og má sjá hér í athyglisverðri grein á vef BBC er stærsta rimman í formúlunni í dag á milli liðsfélaganna Hamilton og Alonso. Hamilton sagði að honum þætti bara fínt að liðsfélaga sínum var refsað um helgina. Ekkert að því. Gott komment hjá Hamilton og loksins að hann sýnir smá karakter utan brautarinnar. Ég er byrjaður að fíla hann.
Sex keppnir eftir og sjö stig á milli þeirra. Verð líka að bæta því við að mér þótti ekkert að því að sjá Kimi "pappaspjald" Raikkönen éta ryk Hamilton alla keppnina og Massa í einhverju tómu tjóni í 14. sæti. Svo gamli Ferrari-refurinn Rubens Barrichello í síðasta sæti. Hvað í fjandanum er annars að gerast hjá Honda og man nokkur maður enn eftir Jenson "ég-fell-ekkert-í-skuggann-á-Hamilton" Button?
PS. Webber er toppmaður en Rosberg þýskur smjörpungur af verstu gerð.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.8.2007 | 17:19
Kominn aftur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2007 | 11:30
Road Trip
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.7.2007 | 18:09
Svíaprinsessan
Á morgun á Viktoría Svíaprinsessa afmæli. Fyrir þá sem ekki vita fæddist ég í Svíþjóð þegar mamma og pabbi voru við nám í Uppsala. Það var ósjaldan sem mér var sagt að það væru nú ekki nema tveir dagar á milli mín og prinsessunnar. Ég hef líka alltaf haldið að mamma hafi gengið með þann draum að ég og prinsessan tækjum saman og ég yrði hluti af sænsku konungsfjölskyldunni.
Ekki varð það raunin enda flutti ég tveggja ára til Íslands og fengum við aldrei tækifæri til að fella saman hugi okkar, ég og Viktoría. Þessa dagana erum við þjáningarsystkini - hennar þrítugsafmæli er opinber skrumskæling og ÉG ER AÐ VERÐA FOKKINGS ÞRÍTUGUR!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.7.2007 | 14:04
Fylkismenn í Þórsarabúningum
Sá þessa skemmtilegu frétt á fótbolta.net. Hún fjallar um það að Fylkismenn þurftu að spila í varabúningum Þórs þar sem aðalbúningur Fylkis þótti of líkur aðalbúningi Þórs.
Nú veit ég að Þórsarar voru á heimavelli en hefði það virkilega verið það slæmt ef þeir hefðu farið í varabúninginn sinn svo Fylkismenn gætu leikið í þeim búningum sem þeir tóku með? Varabúningurinn er hvítur með rauðum buxum, svona rétt eins og aðalbúningur Þórs hefur lengst af verið.
Hefði það virkilega verið svo mikil pína?
Fylkismenn skoruðu tvö mörk í öllum júnímánuði en fjögur í varabúningi Þórs í þessum eina leik. Kannski að þeir ættu að skoða það að fá að leika oftar í þeim búningi.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2007 | 18:56
Bíddu ... ég skil ekki ...
Hvað eru meðlimir aganefndar KSÍ að reykja?
Hvernig stendur á því að þeir Páll Gísli Jónsson og Einar Orri Einarsson fá aðeins eins leiks brottvísun. Ég hélt að venjan væri tveggja leikja bann fyrir beint rautt. Páll Gísli tæklaði mann þegar boltinn var ekki í leik og Einar Orri gjörsamlega slátraði Bjarna Guðjónssyni með ótrúlegri tæklingu.
Ef menn fá ekki tveggja leikja bann fyrir slíka takta, hvað þarf eiginlega til?
Ég man að í 1. umferð fékk Prince Rajcomar, Breiðabliki, tveggja leikja bann fyrir beint rautt spjald. Mér liggur forvitni á að vita hverju þessi munur sætir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2007 | 11:22
Kranablaðamennska hjá DV
Ég bara get ekki orða bundist vegna grein DV um deilu ÍA og Keflavíkur í dag. Þar skrifar Kristín Hrefna Halldórsdóttir grein með fyrirsögninni "Fjölskyldan varð fyrir aðkasti".
Fyrsta málsgreinin er svona: "Anna María Gísladóttir, eiginkona Bjarna Guðjónssonar, varð fyrir aðkasta nokkurra leikmanna Keflvíkinga eftir leik ÍA og Keflavíkur í fyrrakvöld."
Svo kemur nokkru síðar: "Nokkrir leikmenn Keflavíkurliðsins veittust að Önnu María, konu Bjarna, eftir leikinn og hreytti í hana fúkyrðum þannig að henni stóð ekki á sama."
Nú veit ég ekkert hvort þetta er rétt atburðarrás því ég var ekki á staðnum. En var Kristín Hrefna á staðnum? Það kemur ekki fram í greininni. Er þessi lýsing á atburðunum frá sjónarvitni? Það kemur ekki heldur fram í greininni. Þessu er einfaldlega slegið fram sem heilögum sannleik.
Í greininni er rætt við Gísla Gíslason, formann rekstrarráðs KÍA, Bjarna Guðjónsson og Önnu Maríu. Þar með er aðeins fengin einhliða lýsing á atburðunum og þar við látið sitja.
Án þess að ég gagnrýni hvað hafi átt sér stað leyfi ég mér að gagnrýna vinnubrögð Kristínar Hrefnu og DV - og það harkalega. Þetta er kranablaðamennska af verstu gerð og engu líkara en að annar aðilinn í þessu deilumáli hafi fengið að skrifa greinina.
Það hefur sýnt sig, til að mynda í Kastljósi í gær og Fréttablaðinu í dag, að þarna eru menn hreinlega ekki sammála um hvað gerðist. Orð standa gegn orði. Því lítur grein DV afar fíflalega út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Hitt og þetta
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 31118
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Athugið
Aðrir bloggvinir


digranes
730
jonastryggvi
veggurinn
ithrottir